Leikskólagjöld hækka á Akureyri
Í fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir næsta ár er gert ráð fyrir hækkun á dagvistunar- og leikskólagjöldum upp á 7%. Sem dæmi munu dvalartímar hækka um tæplega 1.700 krónur á mánuði, miðað við átta klukkustundir á dag. Þá mun frístundagjald hækka um 880 krónur. Einnig mun fæði hækka um 4% eða 320 krónur. Þetta er þvert á stefnu Akureyrarbæjar í skólamálum en þar segir að leita eigi leiða til að gera leikskólann gjaldfrían.
-þev