Leikhúsvélar, tæki og lögmál Donald Rumsfelds um stig þekkingar

Jón Páll Eyjólfsson.
Jón Páll Eyjólfsson.
Jón Páll Eyjólfsson eikhússtjóri Leikfélags Akureyrar heldur fyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Leikhúsvélar, tæki og lögmál Donald Rumsfelds um stig þekkingar, á þriðjudaginn kemur kl.17:00Þar mun Jón Páll fjalla um almenna kenningu sína um samyrkju í sviðslistum; Leikhúsvélina. Kenning þessi hefur bæði vakið alþjóðlega athygli og verið kennd í Listaháskóla Íslands, en hún er afurð níu ára tilraunavinnu sem miðar að samvinnu í sviðslistum og ber heitið Mindgroup.
 
Jón Páll útskrifaðist úr East 15 Acting School í London árið 2000 og hefur síðan starfað sem leikari og leikstjóri, bæði hér heima og erlendis. 
 
Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn sem er sá tíundi og næstsíðasti í röð fyrirlestra sem haldnir eru í Ketilhúsinu á hverjum þriðjudegi kl. 17 undir yfirskriftinni Þriðjudagsfyrirlestrar.
 
Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri. Hildur Friðriksdóttir heldur síðasta fyrirlestur vetrarins þriðjudaginn 31. mars undir yfirskriftinni Hin fullkomna kvenímynd.

Nýjast