Leik- og grunnskólanemendur fylla miðbæinn á ný

Börnin stóðu sig vel síðasta föstudag.
Börnin stóðu sig vel síðasta föstudag.

Leik- og grunnskólabörn á Akureyri taka virkan þátt í 150 ára afmæli bæjarins með því að leggja leið sína í göngugötuna á morgun, föstudaginn 23. mars klukkan 10.00, á svokölluðum Söngdegi.  Þetta er í annað skipti sem þessir ungu Akureyringar bjóða til slíkrar dagskrár en óhætt er að segja að Söngdagurinn sem haldinn var síðasta föstudag hafi kallað fram breið bros og jafnvel tár á  hvarmi þeirra sem á hlýddu. Söngdagar eru skipulagðir af starfsfólki leik- og grunnskólum Akureyrar og eru haldnir í tilefni af 150 ára afmæli bæjarins en sjálfur afmælisdagurinn er 29. ágúst.  Staðið hafa yfir miklar æfingar í skólunum síðustu mánuði þar sem tónstiginn hefur komið að góðum notum í upphituninni.  Krakkarnir munu hefja upp raust sína með lögum á borð við “Akureyri og norðrið fagra”, “Snert hörpu mína” og “Krummi svaf í klettagjá”. Þeir sem eiga leið um miðbæinn á þessum tíma eru hvattir til að staldra við og hlýða á sönginn.

 

Nýjast