Bókunin snýr að viðskiptabanka sveitarfélagsins og er svo hljóðandi: „Eyjafjarðarsveit hefur allt frá upphafi haft bankaviðskipti sín við Arionbanka. Sveitarfélagið hefur allan þann tíma átt mjög góð og ánægjuleg samskipti við starfsfólk bankans á Akureyri. Á undanförnum vikum hafa borist fréttir af launakjörum bankastjóra sem í sumum tilfellum eru með þeim hætti að vekur undrun. Það er að mati sveitarstjórnar algerlega ólíðandi að á sama tíma og almenningur, fyrirtæki og stofnanir í landinu berjast við að ná endum saman skuli svona launagreiðslur tíðkast. Vegna þessara frétta samþykkir sveitarstjórn að fela sveitarstjóra og skrifstofustjóra að leggja mat á kosti og galla þess að Eyjafjarðarsveit skipti um viðskiptabanka."