Látum okkur málið varða - Stjórnarskráin er stórmál

Halldór Grétar Gunnarsson skrifar

Ég tel mig hafa mikið fram að færa til nýrra tíma þessa þjóðfélags. Er með mikla réttlætiskennd sem hefur vantað hér í landi eigin hagsmuna og samplots auðvalds og stjórnmálaflokka. Ég tel að allar auðlindir landsins séu eign þjóðarinnar og það eigi að koma skírt fram í Stjórnaskránni.Landinu á ekki að vera stjórnað af auðvaldi og hagsmunahópum sem er samofið spilltri pólitík. Ráðherrar skulu ekki vera þingmenn. Fólk í stjórnsýslunni og í ábyrgðarstöðum skal eigi sitja lengur en 12 ár. Það á að koma skýrt fram í Stjórnaskrá að menn í ábyrgðarstöðum skulu sæta refsingu verði þeir uppvísir að afglöpum í starfi. Það á að koma á persónukjöri og atkvæðisvægi verði það sama á hvern þegn landsins.

Endurskoða þarf stjórnskipan Íslands og endurbæta stjórnarskrána til þess að efla vald kjósenda, auðvelda þjóðaratkvæðagreiðslur, tryggja sjálfstæði löggjafarvaldsins gagnvart framkvæmdavaldi og girða fyrir fullveldisafsal.

Undirbúa verður vandlega breytingar á stjórnarskránni. Einnig þarf að endurskoða kosningafyrirkomulag þannig að raunverulegur þverskurður þjóðarinnar eigi greiða aðkomu að lýðræðisferlinu.

Þar sem ekkert liggur fyrir hvað varðar ESB get ég ekki myndað mér neina skoðun á því. En eitt er víst að það er hagur þjóðarinnar sem er nr. 1, auðlindir okkar eigum við aldrei að láta frá okkur hvort heldur það sé til einhverra kvótagreifa eða annarra. Það erum við sem eigum að hagnast af þessu þjóðinn sjálf. Ég var sjálfur sjómaður er fiskveiðistjórnunarkerfið var sett á og var það gert til að hindra ofveiði en ekki til framsals eins og raun varð á. Ég tel að upphaf á því ástandi sem við lifum við í dag megi rekja aftur til þess tíma er menn fóru að nota óveiddann fisk sem gjaldmiðil sín á milli. Ríkið á ekki að stjórnast af Auðvaldinu .

Í mannréttindakafla nýrrar stjórnarskrár ætti að koma grein: Enginn íbúi á Íslandi á að þurfa að lifa undir fátæktarmörkum. Öllum verði tryggð lágmarksframfærsla, hvort sem þeir vinna undir samningum við ríkið og verkalýðsfélög eða eru háðir bótagreiðslum ríkis eða sveitarfélaga. Lágmarksframfærsla skal vera reiknuð út samkvæmt viðurkenndum stöðlum þar sem tekið er tillit til kostnaðar við fæði, klæði, húsnæði, lyfja, veikinda, afþreyingar, samgangna, og vaxta/verðbóta.

Facebook síða er: http://www.facebook.com/hjorturs#!/group.php?gid=132616310123038

Höfundur er frambjóðandi til Stjórnlagaþings Nr: 6318

Nýjast