Landskeppni við Færeyinga í skák haldin á Norðurlandi
Telfd verður tvöföld umferð á 11 borðum og fer fyrri umferðin fram í Framsýnarsalnum á Húsavík laugardaginn 6. ágúst kl. 18.00, en sú síðari verður telfd í menningarhúsinu Hofi á Akureyri á sunnudeginum og hefst kl. 14.00. Íslensku keppendurnir koma í þetta sinn úr röðum Skákfélags Akureyrar, Skákfélagsins Goðans, Skáksambands Austurlands og Taflfélagsins Máta. Færeyingarnir mæta með sterka sveit til leiks í þetta sinn og má búast við jafnri og spennandi keppni. Í seinni umferðinni á sunnudag mun íslenska m.a. liðið tefla fram hinum 11 ára gamla Jóni Kristni Þorgeirssyni. Hann verður þá sá langyngsti sem tekið hefur þátt í landskeppninni frá upphafi og sá yngsti sem nokkru sinni hefur teflt hefur fyrir Íslands hönd í keppni þar sem ekki er raðað í aldursflokka.