FÍB ítrekar því áskorun sína til stjórnvalda frá 28. febrúar sl., um að lækka álögur hins opinbera á bifreiðaeldsneyti. FÍB leggur til við stjórnvöld að skattar á eldsneyti verði lækkaðir um 20 kr. Umferðin í mars dróst saman um 15,5% samanborið við mars í fyrra. Vegagerðin spáir verulegum samdrætti út árið ef þessi þróun heldur áfram. Samdrátturinn er mestur á landsbyggðinni, sem hefur afar neikvæð áhrif á verslun og þjónustu, ekki síst ferðaþjónustuna. Það geta varla talist hagsmunir ríkissjóðs að lama atvinnulíf á landsbyggðinni með óbreyttri skattlagningu. FÍB bendir á að ríkissjóður tekur til sín um 115 kr. af hverjum bensínlítra. Skatttekjurnar hafa hækkað um 52% frá miðju ári 2008.
Samgöngur eru sú lífæð þjóðfélagsins sem hefur mest að segja um hagsæld og félagslegt samneyti. Allt mælir með lækkun þessara skatta. Hátt eldsneytisverð eykur rekstrarkostnað fyrirtækja, sem hækkar flutningskostnað, sem hækkar vöruverð, sem hækkar verðbólgu, sem hækkar skuldir heimilanna - og minnkar ráðstöfunartekjur.