Landsbankinn heldur fund á Akureyri um þjóðhags- og verðbólguspá bankans

Mynd úr safni
Mynd úr safni

Landsbankinn efnir til fundar um uppfærða þjóðhags- og verðbólguspá bankans til ársins 2018. Á fundinum verður einnig fjallað um þróun fasteignamarkaðarins, lausafjárstýringu fyrirtækja, aflandskrónuútboð Seðlabankans, stöðu og horfur á mörkuðum og fleira.

Fundurinn verður haldinn á Hótel Kea í dag fimmtudaginn 2. júní kl. 17.30.

Dagskrá fundar

·         Gústaf Steingrímsson, hagfræðingur í Hagfræðideild Landsbankans, kynnir nýútkomna þjóðhags- og verðbólguspá Hagfræðideildar Landsbankans.

·         Ari Skúlason, hagfræðingur í Hagfræðideild Landsbankans, fjallar um þróun fasteignamarkaðarins og spá Hagfræðideildar Landsbankans um framhaldið.

·         Kristín Erla Jóhannsdóttir, forstöðumaður Eignastýringar Landsbankans, kynnir kosti í lausafjárstýringu fyrirtækja og leitast við að svara því spurningunni: Hvers vegna er eignastýring er fyrir alla?

·         Rósa Björgvinsdóttir, forstöðumaður hjá Landsbréfum, fer yfir stöðu og þróun á innlendum verðbréfamörkuðum og fyrirhugað aflandskrónuútboð Seðlabankans.

·         Fundarstjóri verður Arnar Páll Guðmundsson, útibússtjóri Landsbankans á Akureyri.

Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig á fundinn á meðfylgjandi vefslóð:

https://www.landsbankinn.is/skraning/ny-thjodhags-og-verdbolguspa-akureyri/

 

 

Nýjast