Læknaráð vill að fram fari úttekt á starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri

Fundur Læknaráðs Sjúkrahússins á Akureyri sem haldinn var í dag samþykkti álytkun, þar  sem þess er farið á leit við æðsta yfirmann heilbrigðismála í landinu, heilbrigðisráðherra, að hann láti gera úttekt á starfsemi spítalans, bæði stjórnunarlega og rekstrarlega. Tilgangur með þessari úttekt er að tekin verði stefna sem leiðir spítalann inní framtíðina af fyrirhyggju.  

"Ástæðan fyrir þessari beiðni er margþætt og á sér langan aðdraganda. Nú er svo komið að læknar hafa verið að hverfa frá spítalanum og í vaxandi mæli reynst erfitt að manna þær stöður. Læknum spítalans líst illa á þróunina og sjá fyrir sér mikla erfiðleika nú þegar og versnandi ástand í bráð og lengd. Ef ekkert verður að gert er hætta á að Sjúkrahús Akureyrar, þetta sterka bakbein í heilbrigðisþjónustu landsmanna, koðni niður og standi ekki undir þeim kröfum sem til þess eru gerðar, ekki síst í ljósi þeirra auknu verkefna sem bíða FSA vegna samdráttar á sjúkrastofnunum í nágrannabyggðum," segir ennfremur í ályktuninni.

Jafnframt var samþykkt áskorun til heilbrigðis- og félagsmálaráðherra, varðandi vanda er snýr að mönnun lækna á lyflækningadeild FSA. "Forstöðulæknir lyflækningadeildar Sjúkrahússins á Akureyri hefur sagt að lokun deildarinnar geti verið yfirvofandi vegna langvarandi skorts á læknum til starfa. Almennur fundur í Læknaráði FSA haldinn 12. október 2010 skorar á heilbrigðis- og félagsmálaráðherra að beita tafarlaust öllum ráðum til að leysa þennan vanda lyflækningadeildarinnar, sem ella mun valda skorti á nauðsynlegri þjónustu við sjúklinga á upptökusvæði sjúkrahússins og stefna þeim í hættu."

Þá mótmælir læknaráð Sjúkrahússins á Akureyri (FSA) niðurskurði á fjárlögum til heilbrigðismála á Norður- og Austurlandi. Niðurskurðurinn mun skerða aðgengi og gæði heilbrigðisþjónustu á öllu upptökusvæði FSA, segir í álytkun læknaráðsins.

Nýjast