Kvennahlaupið fer fram á laugardag

Kvennahlaupið á Akureyri 2012. Mynd úr safni
Kvennahlaupið á Akureyri 2012. Mynd úr safni

Kvennahlaupið fer fram laugardaginn 4. júní. Hlaupið verðu á yfir 100 stöðum hérlendis og erlendis. Hreyfing er lykillinn að góðri heilsu og nærir líkama og sál. Við hvetjum því allar konur til að mæta í Kvennahlaupið og njóta þess að hreyfa sig, hver á sínum hraða og forsendum.

Konur á öllum aldri eru hvattar til að mæta og njóta þess að hreyfa sig, hver á sínum hraða og forsendnum. Í boði verður bæði 2,5 km og 5 km hringur. Frekari upplýsingar um hlaupið og hlaupastaði má nálgast HÉR.

Verð á bolunum er 2.000 kr. fyrir 13 ára og eldri, en 1.000 kr. fyrir 12 ára og yngri. 

Nýjast