Símtalið
Á milli jóla og nýárs hringir kær vinkona í mig til að óska mér til hamingju með brúðkaupsafmælið og spyr hvort það sé ekki örugglega þennan sama dag, 28. desember. Ég verð smá vandræðaleg segist réttilega aldrei muna hvort sé 27. eða 28. d...
Oft á tíðum er talað um það að versla í heimabyggð. Það er oft tengt því þegar einhver heimamaður opnar búð eða þjónustu og vill þannig höfða til heimamanna að standa með sér í baráttunni.
Verslun í heimabyggð er mjög mikilvæg. Hún eflir atvinnulífi...
Stofnfundur nýrrar, sameinaðrar félagsdeildar Norræna félagsins á Norðurlandi var haldinn þann í Zontahúsinu á Akureyri nýlega. Á fundinum voru Norrænu félögin á Ólafsfirði, Siglufirði og Akureyri sameinuð og nær áhrifasvæði nýs félags nú yfir Norðurland allt.
„Hátt ákall hefur verði frá foreldrum í Akureyrarbæ um sumarfrístund fyrir börn í yngstu bekkjum grunnskóla,“ segir í bókun sem Ásrún Ýr Gestsdóttir V-lista og Rannveig Elíasdóttir S-lista bókuðu á fundi fræðslu -og lýðheilsuráðs þar sem fjallað var um frístund í komandi ágústmánuði. Ráðið samþykkt í fundinum áform um frístundastarf fyrir verðandi fyrstu bekkinga í ágúst 2026.
Framboðslisti Framsóknarflokksins á Akureyri vegna komandi sveitarstjórnarkosningana í vor var lagður fram í gær.
Sunna Hlín Jóhannesdóttir, bæjarfulltrúi verður oddviti listans og Gunnar Már Gunnarsson bæjarfulltrúi skipar annað sætið en þau skipuðu einmitt þau sæti á þessu kjörtímabili. Sverre Andreas Jakobsson, er í þriðja sæti og Guðbjörg Anna Björnsdóttir í þvi fjórða.
Í næstu viku, miðvikudaginn 11. mars, verður Háskóladagurinn haldinn á Akureyri og okkur lék forvitni á að vita aðeins meira um viðburðinn. Við tókum því Sólveigu Maríu Árnadóttur, verkefnastjóra samfélagsmiðla og samskipta, og Silju Jóhannesar Ástudóttir samskiptastjóra tali, en báðar starfa við Háskólann á Akureyri.
„Það er forgangsmál nú á þessum tímapunkti að efla getu varaflugvallakerfisins til að það geti sinnt sínu hlutverki. Allt snýst þetta um flugöryggi, það er stóra málið,“ segir Njáll Trausti Friðbertsson alþingismaður og flugumferðarstjóri. Síðastliðinn fimmtudag, 26. febrúar lentu alls átta farþegaþotur á Akureyrarflugvelli eftir að Keflavíkurflugvöllur lokaðist óvænt vegna veðurs. Þá lentu fimm þotur á Reykjavíkurflugvelli og þrjár á Egilsstaðaflugvelli. „Það var mikill léttir að verða vitni að því hversu vel þetta gekk alls saman. Það hríslaðist um mig ánægjutilfinning þegar þetta var yfirstaðið, því er ekki að neita.“
Eik fasteignafélag hefur óskað eftir álits skipulags- og umhverfisnefndar Hörgársveitar á beiðni félagsins um breytingu á aðal- og deiliskipulagi Lónsbakka fyrir lóðirnar Lónsbakka og Dvergastein lóð.