Samkvæmt nýrri hagspá ASÍ eru horfur í efnahagslífinu bjartar um þessar mundir. Gangi spá hagdeildar eftir verður hagvöxtur hér á landi samfelldur í 8 ár. Kraftmiklum hagvexti er spáð á þessu ári eða 4,9% og að hann verði að jafnaði 3,8% á árunum 2017–2018. Vöxturinn hvílir á vaxandi kaupmætti, uppgangi í ferðaþjónustu og aukinni fjármunamyndun atvinnuveganna og sést bæði í auknum þjóðarútgjöldum og áframhaldandi vexti útflutnings.
Á vef Einingar Iðju segir: „Í slíkum efnahagslegum uppgangi finnast stórar áskoranir og mikilvægt að hagstjórn miði að því að tryggja efnahagslegan stöðugleika á næstu árum. Skýr merki um spennu sjást nú á vinnumarkaði, vöxtur innlendrar eftirspurnar er mikill en hagfelld þróun á hrávöruverði og gengi krónunnar hafa haldið verðbólgu lágri og verðstöðugleikinn er því brothættur. Verðbólga helst lág á þessu ári, 1,9% að jafnaði, en þrýstingur til hækkunar verðlags mun aukast eftir því sem líður á árið og verðbólga verður um 3,1% á árunum 2017–2018 að mati hagdeildar ASÍ.“
Nokkur óvissa ríkir um gengi krónunnar og myndi frekari styrking draga úr verðbólguþrýstingi. Hagdeildin gerir ráð fyrir kraftmiklum vexti einkaneyslunnar á spátímanum sem rekja má til jákvæðrar þróunar á fjárhagsstöðu heimilanna. Hagvísar styðja mat hagdeildar upp á 6% vöxt einkaneyslunnar á þessu ári og því útlit fyrir að vöxturinn verði sá mesti frá árinu 2007.
Skýr merki um spennu sjást á vinnumarkaði. Atvinnuþátttaka mælist tæp 83%, þriðjungur fyrirtækja finnur fyrir skorti á starfsfólki og útlit er fyrir að eftirspurn eftir vinnuafli haldi áfram að aukast á næstunni. Erfitt mun reynast að mæta aukinni vinnuaflseftirspurn innanlands og því líklegt að erlendu starfsfólki fjölgi. Ofangreind þróun mun draga úr atvinnuleysi og það kann að verða á bilinu 2,4–2,6% á spátímanum. /epe