Kosningaþátttakan á Akureyri að slá öll met

Helga Eymundsdóttir formaður kjörstjórnar á Akureyri segir að kosningaþátttakan í Icesave-kosningunum sé að slá öll met. Hún segir að biðröð hafi verið fyrir utan VMA þegar kjörstaður var opnaður kl. 09.00 í morgun. Tveimur tímum síðar eða kl. 11.00 höfðu 1184 kosið á Akureyri, eða 9,02%. Þetta er mun meiri kosningaþátttaka en í síðustu kosningum.  

Í stjórnlagaþingskosningunum á síðasta ári var kjörsókn á Akureyri kl. 11.00 aðeins 4,11%, í síðustu Ivesave-kosningum í fyrra var kjörsókn kl. 11.00 7,25% og í síðustu alþingiskosningum, árið 2009, var kjörsókn á Akureyri kl. 11.00, 8,29%. Þá segir Helga að einnig hafi verið slegið met í utankjörfundaratkvæðgreiðslunni. Á Akureyri kusu 1600 manns en hæsta talan áður var 1300 manns. Þá átti Helga von á kjörkassa úr Reykjavík og sagði hún að utankjörfundaratkvæði færu mjög líklega yfir 2000.

Nýjast