Kennsludiskur í handknattleik

Sturla Ásgeirsson (t.v.) og Bjarni Fritszon gefa ungum handknattleiksiðkendum góð ráð.
Sturla Ásgeirsson (t.v.) og Bjarni Fritszon gefa ungum handknattleiksiðkendum góð ráð.

Handknattleiksmennirnir Bjarni Fritzson og Sturla Ásgeirsson hafa sent frá sér kennsludiskinn, Frá byrjanda til landsliðsmanns. Þetta er fyrsti diskur sinnar tegundar hér á landi og inniheldur tveggja klukkustunda efni, þar sem farið yfir helstu æfingar og styrktarþjálfun sem við kemur handknattleik.

„Ég er búinn að vera með handboltaskóla í fjögur ár og hef tekið eftir miklum getumun hjá krökkum. Mér finnst það slæmt og hugmyndin með disknum er að brúa bilið svo flestir krakkar geti náð þeim árangri sem þeir stefna að. Þetta kennsluefni er hannað sérstaklega til þess að krakkar geti bætt sig sjálfir heima hjá sér,“ segir Bjarni.

Auk kennslu í æfingum bregður landsliðsmönnum fyrir og gefa krökkum góð ráð. Má þar nefna Guðjón Val Sigurðsson, Arnór Atlason, Karen Knútsdóttur og Ólaf Stefánsson. Einnig er farið með handboltann út fyrir veggi íþróttahúsanna og farið í marga skemmtilega leiki.

Skyldueign

Diskurinn er sniðinn að þörfum handknattleiksiðkenda sem vilja bæta hæfni sína og er skyldueign fyrir alla sem stunda íþróttina að sögn Bjarna. Í tilefni útgáfunnar verður diskurinn seldur á sérstöku forsöluverði í kvöld, fimmtudag, í Íþróttahöllinni á Akureyri þegar heimamenn taka á móti HK í N1-deild karla kl. 19:00. Forsöluverð er 2500 krónur.

Bjarni Fritszon og Sturla Ásgeirsson eru öllum hnútum kunnir þegar kemur að handknattleik. Þeir eiga báðir fjölmarga A-landsleiki að baki og hafa m.a. keppt á Ólympíuleikunum með landsliðinu. Bjarni er leikmaður og annar þjálfari Akureyrar en Sturla leikur með ÍR.

 

Nýjast