KENNSLA OG RANNSÓKNIR Í STARFSENDURHÆFINGU EFLD

Fulltrúar VIRK, Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri skrifuðu á dögunum undir samstarfssamning um ráðningu lektors í starfsendurhæfingu í tengslum við eflingu náms á fræðasviðinu. Báðir skólarnir munu bjóða í sameiningu upp á framhaldsnám í starfsendurhæfingu frá og með haustinu 2016. Þetta kemur fram á heimasíðunni virk.is.
Samningurinn kveður á um ráðningu í tímabundið starf lektors sem skiptist í tvær 50% stöður, eina í hvorum skóla. Það er von samningsaðila að með ráðningunni megi efla kennslu og rannsóknir á sviði starfsendurhæfingar og efla þannig þróun og stefnumörkun á fræðasviðinu. Ráðningin er til tveggja og hálfs árs. Í samningnum er gert ráð fyrir að námið gagnist starfsemi VIRK sem grundvallast á þverfaglegri, einstaklingsbundinni starfsendurhæfingu samhliða markvissu starfsgetumati.
Lektorsstöðurnar við skólana verða fjármagnaðar af VIRK með 7,5 milljóna króna framlagi árlega í tvö og hálft ár. Hlutverk lektoranna verður að vinna að uppbyggingu hinnar nýju þverfræðilegu greinar starfsendurhæfingar innan skólanna tveggja, jafnframt að fylgja úr hlaði nýju diplómanámi í starfsendurhæfingu sem er samstarfsverkefni Félagsráðgjafardeildar Háskóla Íslands og Heilbrigðisvísindasviðs Háskólans á Akureyri.
Náminu er ætlað að taka á helstu færniskerðingum starfsgetumissis, stuðli að heildarsýn á velferðarkerfið og hlutverk hverrar stofnunar í starfsendurhæfingarferli einstaklings, veiti þekkingu á matsferli í starfsendurhæfingu og að starfað sé út frá hugmyndafræði endurhæfingar þar sem markvisst er unnið með færniskerðingu samhliða því að styrkleikar eru kallaðir fram.
Upplýsingar um hið nýja framhaldsnám í starfsendurhæfingu sem hefst í haust má finna hér á vefsíðu Háskóla Íslands. /epe