Kennarar í VMA: "Staðan er nú grafalvarleg og skólinn nánast gjaldþrota"
Kennarar við Verkmenntaskólann á Akureyri gagnrýna stjórnvöld harðlega í ályktun sem þeir sendu frá sér í gær. Þar því mótmælt að fjármálaráðuneytið hafi í byrjun þessa árs ákveðið að hætta alfarið að greiða rekstrarfé til skólans.
Kennararnir segja fjárhagsstöðu skólans sé grafalvarlega, að stutt sé í gjaldþrot. Þeir skora á alla, sem vilja veg framhaldsskólamenntunar í landinu meiri, til að ganga í lið með skólanum og sjá til þess að ákvörðun fjármálaráðuneytisins verði dregin til baka.
Ályktun kennaranna má sjá í heild sinni hér að neðan:
Á fjölmennum fundi kennara í Verkmenntaskólanum á Akureyri þann 18. maí 2016 var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða:
Verkmenntaskólinn á Akureyri hefur búið við fjársvelti allt frá hruni. Fjárveitingum hefur að mestu verið varið í samningsbundnar greiðslur, s.s. laun, en kennslubúnaður og vinnuaðstæður nemenda og kennara setið á hakanum. Afleiðingin er sú að fjölmörg tæki sem notuð eru til verklegrar kennslu eru úrelt, tölvur skólans eru á síðasta snúningi og svo mætti lengi telja.
Þó kastaði tólfunum í fjársveltistefnu yfirvalda í byrjun þessa árs þegar fjármálaráðuneytið ákvað að hætta alfarið að greiða rekstrarfé til skólans. Opinber skýring ráðuneytisins er hallarekstur ársins 2015 en halli þess árs byggði að stærstum hluta á vanáætlun ráðuneytisins sjálfs á kostnaði við kjarasaminga sem fjármálaráðherra gerði við kennara árið 2014. Í þeim sama samningi er undirrituð yfirlýsing ráðherra fjármála og menntamála um að þeir muni tryggja fjármuni vegna samningsins. Það gerðu þeir ekki og þess vegna voru fjölmargir framhaldsskólar reknir með halla á síðasta ári, þ.á.m. VMA. Staðan er nú grafalvarleg og skólinn nánast gjaldþrota.
Kennarar í Verkmenntaskólanum á Akureyri mótmæla harðlega stöðvun Fjármálaráðuneytis á greiðslu rekstrarfjár til skólans. Við hvetjum alla, sem vilja veg framhaldsskólamenntunar í landinu meiri, til að ganga í lið með skólanum og sjá til þess að ákvörðunin verði þegar í stað dregin til baka.Við skorum á alþingismenn að kynna sér þetta mál og beita sér fyrir því að látið verði af þessari ósvinnu. Síðast en ekki síst skorum við á þá ráðherra sem mesta ábyrgð bera, fjármálaráðherra og menntamálaráðherra, að veita þegar í stað fé til rekstrar skólans svo að ekki hljótist meiri skaði af en þegar er orðinn.
Fyrir hönd kennarafélags VMA,
Hermann J. Tómasson