KEA veitti 44 styrki að upphæð 8,1 milljón króna

Menntamálaráðherra,  Katrín Jakobsdóttir og framkvæmdstjóri KEA, Halldór Jóhannsson, afhentu í dag styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA. Þetta er í 77. sinn sem KEA veitir styrki úr sjóðnum og fór úthlutunin fram í Ketilhúsinu á Akureyri. Auglýst var eftir umsóknum í september síðastliðnum og bárust 167 umsóknir. Veittir voru 44 styrkir, samtals að fjárhæð 8,1 milljón króna. Úthlutað var úr fjórum styrkflokkum; almennum flokki, ungum afreksmönnum, þátttökuverkefnum og íþróttastyrkjum.  

Fjórtán aðilar hlutu almennan styrk, hver að fjárhæð 150 þúsund krónur. Til ungra afreksmanna voru veittar fimmtán viðurkenningar og styrkir, rúmlega 2 milljónir króna. Til þátttökuverkefna var úthlutað 1,5 milljón króna og hlutu fimm aðilar styrk. Tíu íþróttastyrkir voru veittir, rúmlega 2,4 milljónir króna.

Almennir styrkir, hver styrkur kr. 150.000,-. Eftirtaldir fengu úthlutun:

  • Kvenfélagið Hjálpin - Til að gefa út sögu félagsins í tilefni 100 ára afmælis.
  • Tónlistarfélag Dalvíkur - Til að gefa út safndisk með söng Jóhanns Daníelssonar.
  • Skíðaminjasafnið FÁUM - Til stofnunar og reksturs skíðaminjasafns á Siglufirði.
  • Svavar Alfreð Jónsson - Til að halda gefa út bók og halda sýningu á ljósmyndum.
  • Orri Harðarson - Til að gefa út geisladisk.
  • Kvæðamannafélagið Gefjun - Til kynningar á kvæðamennsku og rímnakveðskap í leikskólum.
  • Listvinafélag Akureyrarkirkju - Vegna tólftu Kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju.
  • Þingeyskur sagnagarður - Til útgáfu á þingeysku sagnakveri.
  • Fræðafélag um forystufé - Til uppbyggingar fræðaseturs um forystufé.
  • Hugrún Ívarsdóttir - Vegna jólasýningar Laufabrauðsetursins í Hofi.
  • Sigurhæðir - Hús skáldsins - Vegna dagskrár í tilefni þess að 175 ár eru liðin frá fæðingu Sr. Matthíasar Jochumsonar.
  • Geðlist - Til að taka þátt í samsýningu Geðlistar, list án landamæra 2011.
  • ÚÁT ungmenningarhús á Húsavík - Til að standa fyrir menningarviðburðum.
  • Kristín María Hreinsdóttir - Vegna viðhalds á Ljósavatnskirkju.

Ungir afreksmenn, styrkupphæð 150.000,-kr.

  • Bryndís Rún Hansen, sund.
  • Brynjar Leó Kristinsson, skíðaganga.
  • Eyrún Unnarsdóttir, söngur.
  • Hafdís Sigurðardóttir, frjálsar íþróttir.
  • Sigurgeir Halldórsson, skíði.
  • Þorsteinn Ingvarsson, frjálsar íþróttir.
  • Þuríður Helga Ingvarsdóttir, fiðluleikur.

Ungir afreksmenn, styrkupphæð 125.000,-kr.

  • Geir Guðmundsson, handbolti.
  • Gísli Páll Helgason, knattspyrna.
  • Guðmundur Hólmar Helgason, handbolti.
  • Jón Þór Ásgrímsson, kraftasport.
  • Oddur Grétarsson, handbolti.
  • Róbert Ingi Tómasson, skíði.
  • Silvía Rán Sigurðardóttir, knattspyrna.
  • Örvar Samúelsson, golf.

Íþróttastyrkir:

  • Héraðssamband Þingeyinga, kr.150.000 - Til kaupa á kids athletic tösku.
  • Tennis- og badmintonfélag Akureyrar, kr. 200.000 - Til að efla badmintoniðkun á Akureyri.
  • Elsa Björk Skúladóttir, kr. 200.000 - Til skíðaþjálfunar fatlaðra.
  • Skíðafélag Dalvíkur, kr. 200.000 - Til kaupa á æfingabúnaði fyrir börn og unglinga.
  • Íþróttafélagið Völsungur, kr. 200.000 - Til að efla forvarnir meðal ungra íþróttaiðkenda.
  • Skautafélag Akureyrar, kr. 200.000 - Til kaupa á hlífðarbúnaði fyrir börn.
  • Taekwondo deild Þórs, kr. 200.000 - Vegna æfingaferða sjö barna sem valin hafa verið í landslið Íslands í Taekwondo.
  • Sundfélagið Óðinn, kr. 200.000 - Vegna ferðar barna á sundmót í Hafnarfirði.
  • Skíðafélag Ólafsfjarðar, kr. 400.000 - Til kaupa á snjóbyssum.
  • Íþróttafélagið Magni á Grenivík, kr. 500.000 - Til að koma upp fótboltavelli.

Þátttökuverkefni:

  • Norðri-menningarfélag, kr. 300.000 - Til að koma upp sagnabanka um mannlíf á Akureyri.
  • Hollvinafélag Húna II, kr. 300.000 - Vegna verkefnisins "Frá öngli í maga".
  • KKA akstursíþróttafélag, kr. 300.000 - Til að efla barna- og unglingastarf félagsins.
  • Hermann R. Herbertsson og Jón Aðalsteinn Hermannsson, kr.300.000 - Til að gefa út Fnjóskdælasögu.
  • Dalvíkurkirkja, kr. 300.000 - Til að kaupa flygil.

Nýjast