06. desember, 2012 - 16:34
Fréttir
Jón Oddgeir Guðmundsson, Jón Knútsen, Einar Björnsson, Sigurveig Bergsteinsdóttir og Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA.
Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA afhenti í dag samstarfsaðilum hjálparstarfs á Akureyri 700 þúsund króna peningagjöf, sem ætluð til að létta undir með fólki sem þarfnast aðstoðar fyrir jólin.
Hjálparstarf kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd, Hjálpræðisherinn og Rauði krossinn á Akureyri hafa nú tekið höndum saman og vinna sameiginlega að hjálparstarfi á svæðinu.
KEA hefur til margra ára veitt fjármuni í hjálparstarf fyrir jólin og fagnar því samstarfi þessara aðila.
Jón Oddgeir Guðmundsson, Einar Bjarnason, Sigurveig Bergsteinsdóttir og Jón Knútsen veittu gjöfinni viðtöku og sögðu að framlag KEA kæmi svo sannarlega að góðum notum því margir þyrftu aðstoðar við í aðdraganda jóla. Sigurveig sagði að gjöf KEA væri stærsta einstaka gjöfin til þessa.
karleskil@vikudagur.is