04. apríl, 2011 - 08:56
Fréttir
KA/Þór er Íslandsmeistari í 2. deild kvenna í handbolta eftir sigur gegn liði Stjörnunnar, 34:31, í úrslitaleik sem fram fór
í íþróttahúsinu við Strandgötu á laugardaginn var. Áður hafði KA/Þór unnið Víkinga í
undanúrslitum, 29:20.