Karllæg forysta í Norðausturkjördæmi

Af þeim þingflokkum sem komnir eru fram í Norðausturkjördæmi  er engin kona í oddvitasæti á framboðslistum þeirra.

Benedikt Jóhannesson stofnandi Viðreisnar, tilkynnti á Rás 1 í morgun að hann ætlaði fram í fyrsta sætið í kjördæminu, þrátt fyrir að búa í Reykjavík. Oddvitar Bjartrar framtíðar, Vinstri Grænna, Pírata og Framsóknarflokks eru líka karlar. Allar útlit er fyrir að sömu sögu verði að segja um skipan lista hjá Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki. RÚV sagði fyrst frá þessu.

Oddvitar framboðslista þingflokkanna í Norðausturkjördæmi eru þeir Preben Pétursson varaþingmaður Bjartrar framtíðar, Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður og fyrrverandi formaður VG, Einar Aðalsteinn Brynjólfsson framhaldsskólakennari fyrir Pírata og svo Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar, sem þó er búsettur í Reykjavík.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Höskuldur Þórhallsson þingmaður sækjast báðir eftir oddvitasætinu á flokksþingi Framsóknar. Ákveðið verður hvenær það fer fram á miðstjórnarfundi flokksins þann 10. september næstkomandi.

Stillt verður upp á lista Samfylkingar í kjördæminu og hann tilkynntur á sunnudag. Logi Einarsson, bæjarfulltrúi og nýr varaformaður Samfylkingarinnar, hefur gefið kost á sér í oddvitasætið.

Kjördæmisþing Sjálfstæðisflokksins verður haldið í Mývatnssveit um helgina og hefur Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra einn gefið kost á sér til að leiða listann.

Talsmenn Alþýðufylkingarinnar, Dögunar, Flokks fólksins, Húmanistaflokksins og Íslensku þjóðfylkingarinnar hafa sagst ætla að bjóða fram í öllum kjördæmum, en listar eru ekki komnir fram. 

Fyrir síðustu Alþingiskosningar var aðeins ein kona í oddvitasæti í Norðausturkjördæmi. Það var Brynhildur Pétursdóttir fyrir Bjarta framtíð en hún hefur tilkynnt að hún muni ekki gefa kost á sér til áframhaldandi þingsetu.  

Nýjast