Kærður fyrir kynferðisbrot

Ákærði dvelur í fangelsinu á Akureyri.
Ákærði dvelur í fangelsinu á Akureyri.

Gæsluvarðhald yfir manninum sem grunaður er um kynferðisbrot gegn tveimur átta ára drengjum á Akureyri hefur verið framlengt til 18. október. Að sögn lögreglunnar á Akureyri er búið að gefa út ákæru á hendur manninum sem var þingfest fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra í morgun.

Í gæslu­v­arðhaldsúr­sk­urði héraðsdóms kemur fram að sterk­ur grun­ur sé uppi um að maður­inn hafi með hót­un fengið dreng­ina inn í íbúð sína þar sem hann hafi haft þá á sínu valdi um stund um miðjan ágúst.

Auk brotanna gagnvart drengjunum er maðurinn grunaður um brot gegn þroskaskertri konu á Akureyri fyrr á þessu ári.

Ákærði er rúmlega þrítugur og er grunaður um gróf kynferðisbrot.

-þev

Nýjast