KA og GA fái fjárstuðning vegna kalskemmda á svæðum félaganna
Íþróttaráð tók jákvætt í erindi félaganna en í bókun ráðsins segir: Íþróttaráð telur að þær veðurfarslegu aðstæður sem voru sl. vetur og vor hafi haft veruleg áhrif á þau íþróttafélög sem sjá um rekstur grassvæða í eigu Akureyrarbæjar. Ráðið telur það ljóst að án þeirra aðgerða sem gripið var til af hálfu félaganna hefði hefðbundin starfsemi þeirra raskast verulega með tilheyrandi óþægindum og tekjutapi. Íþróttaráð leggur því mikla áherslu á, að vegna þessara óvæntu og óviðráðanlegu aðstæðna sem upp komu, að Akureyrarbær taki þátt í þeim kostnaði sem til féll vegna viðgerðanna. Íþróttaráð óskar eftir því við bæjarráð að Knattspyrnufélagi Akureyrar og Golfklúbbi Akureyrar verði veittur fjárhagslegur stuðningur vegna ofangreinds kostnaðar.