Jóna Hlíf heldur fyrirlestur í Ketilhúsinu

Þriðjudaginn 13. janúar kl. 17:00 heldur Jóna Hlíf Halldórsdóttir, myndlistarmaður og formaður Sambands íslenskra myndlistarmanna, fyrsta Þriðjudagsfyrirlestur ársins í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Kjarni. Þar mun Jóna Hlíf fjalla um eigin myndlistarferil og verkefni sem hún hefur staðið fyrir. Einnig mun hún fjalla um starf sitt sem formaður SÍM og segja frá helstu hagsmunamálum.
Jóna Hlíf Halldórsdóttir nam við Fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri á árunum 2003 til 2005 og lauk MFA-gráðu frá Glasgow School of Art í Skotlandi 2007. Árið 2012 útskrifaðist hún með MA í listkennslu fráListaháskólanum en hún býr og starfar í Reykjavík.
Jóna Hlíf vinnur í ólíka miðla og hefur unnið fjölbreytt verk, bæði á einkasýningum og í samvinnu við aðra listamenn. Jóna Hlíf starfar semstundakennari hjá Myndlistaskólanum á Akureyri og Listaháskóla Íslands. Nánari upplýsingar um hana er að finna á heimasíðunni jonahlif.com.

Þetta er fyrsti Þriðjudagsfyrirlestur ársins en þeir fara sem fyrr fram í Ketilhúsinu, sem nú er hluti af Listasafninu á Akureyri og einn af sýningarsölum þess, á hverjum þriðjudegi kl. 17. Aðgangur er ókeypis.
Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefniListasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri. Á meðal annarra fyrirlesara vetrarins eru Hildur Friðriksdóttir, Eiríkur Stephenson og Hjörleifur Hjartarson (Hundur í óskilum), Margeir Dire Sigurðsson, Guðmundur Heiðar Frímannsson, Katrín Erna Gunnarsdóttir, María Rut Dýrfjörð og Jón Páll Eyjólfsson.

Nýjast