Jón yfirgefur herbúðir SA

Jón Benedikt Gíslason, fyrirliði Skautafélags Akureyrar, hyggst yfirgefa félagið og leika í Danmörku næsta tímabil. Jón, sem er 27 ára, hefur reynslu af atvinnumennsku en hann var t.a.m. atvinnumaður í Kína fyrir þó nokkrum árum.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag en þar segir Jón í viðtali við blaðið að ekki sé víst hvar hann muni spila í Danmörku.

 

„ Ég er með boð frá Olaf Eller (landsliðsþjálfaranum) en hann þjálfar lið í næstefstu deild í Danmörku. Ég mun skoða það og væntanlega mun ég reyna fyrir mér hjá fleiri félögum,” sagði Jón, sem nú er staddur í Króatíu með landsliðinu sem tekur þátt á HM í 2. deild.

Nýjast