Jón Gunnar stýrir Akureyrarvöku
Í dag var undirritaður samningur við Jón Gunnar Þórðarson leikstjóra um verkefnastjórn á Akureyrarvöku 2015 í samvinnu við Akureyrarstofu og er þetta í þriðja skipti sem Jón Gunnar er fenginn til starfans. Hátíðin fer fram síðustu helgina í ágúst 28.-30.ágúst en sjálfur afmælisdagur bæjarins er 29.ágúst. Akureyrarvaka hefur tvö síðustu ár unnið með ákveðin þemu.
Árið 2013 var þemað Fjölmenning, í fyrra var það Al-menning fyrir almenning og í ár mun dagskráin litast af því að í ár er þess minnst að 100 ár eru síðan konur fengu kosningarétt. Fjölmargar konur hafa gert Akureyrarbæ að þeim menningarbæ sem hann er í dag og því er þeirra sérstaklega minnst af þakklæti og virðingu eins og þær eiga skilið.
Undirbúningur fyrir dagskrá Akureyrarvöku er hafinn og enn sem fyrr er áhersla lögð á fjölbreytta,metnaðarfulla og litríka dagskrá þar sem bæjarbúa og gestir njóta saman upplifunar. Allir þeir sem hafa skemmtilegar hugmyndir í kollinum eru hvattir til að senda línu í netfangið akureyravaka@akureyri.is