Jafnréttissamfélagið- hvernig á það að líta út?
Í dag verður haldin málstofa á vegum Jafnréttisstofu í Akureyerarakademíunni í gamla Húsmæðraskólanum við
Þórunnarstræti. Í málstofunni verða flutt þrjú stutt erindi en síðan verða hringborðsumræður með
þátttöku allra málstofugesta. Bergljót Þrastardóttir á Jafnréttisstofu segir að oft hafi verið þörf fyrir
umræður en nú sé nauðsyn. "Við lifum á tímum endurmats og það er kallað eftir siðbót og réttlæti. Þar
verða bæði kyn að koma að allri umræðu og stefnumótun. Hver er staðan nú, hvert ætlum við að stefna og hvaða áhrif munu
loftslagsbreytingar og aðgerðir til að draga úr þeim hafa á mótun framtíðarsamfélagsins? Breytingar hljóta að eiga sér
stað þegar loksins verður brugðist við vandanum. Eigum við sem samfélagsþegnar ekki að hafa áhrif á þær? "
Samkvæmt upplýsingum frá Bergljótu hafa síðustu áratugir einkennst af miklum hagvexti og neysluhyggju sem náðu hámarki hér á landi fyrir örfáum árum en enduðu með hruni. Hvort tveggja er á kostnað auðlinda jarðar, umhverfisins og hinna fátæku í heiminum. Við getum lært af fortíðinni hvernig hægt er að nýta auðlindir jarðar á sjálfbæran hátt. Spennandi samfélagsbreytingar eru framundan og þær verða að byggjast á jöfnuði, jafnrétti og virðingu við umhverfið. Hvernig samfélag viljum við? Hvernig viljum við að valdahlutföll verði í framtíðarlandinu? Hverjir munu ráða yfir auðlindunum og hvernig? Hvernig verður jafnrétti kynjanna háttað? Verður framtíðarlandið land barna og umhyggju? Hvaða gildi viljum við að verði í hávegum höfð? Spurningarnar eru ótal margar og eru allir velkomnir í Akureyrarakademíuna til að ræða um framtíðarlandið," segir
Dagskrá:
Kl. 16.00 Málstofan sett.
Kl. 16.05 Erindi - Kristín Vala Ragnarsdóttir forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands
Kl. 16.25 Erindi – Hlynur Hallsson myndlistarmaður
Kl. 16.45 Erindi – Kristín Ástgeirsdóttir framkvæmdastýra Jafnréttisstofu
Kl. 17.00-18.00 Umræður á hringborðum.
Málstofustjóri: Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni og formaður stjórnar Akureyrarakademíunnar