Ítreka mikilvægi þess að allir fái sömu meðferð í bönkunum

Landssamband framsóknarkvenna hefur sent frá sér ályktun, þar sem lýst er yfir vanþóknun sinni á þeim gríðarlega háu afskriftum sem fram hafa farið í bönkunum á lánum ákveðinna fyrirtækja á sama tíma og harkalega er gengið nærri almenningi sem glímir við gríðarlegan skuldavanda. Skuldavanda sem er að miklu leyti tilkominn vegna glæfralegrar starfsemi bankanna.  

Landssamband framsóknarkvenna telur það einnig mjög ámælisvert að sum þessara fyrirtækja hafa greitt sér himinháan arð á sama tíma og þau hafa safnað gríðarháum skuldum. Koma þarf í veg fyrir að slíkt sé hægt með lagasetningu. Landssamband framsóknarkvenna ítrekar mikilvægi þess að allir fái sömu meðferð í bönkunum til þess að takast á við skuldavanda sinn hvort sem um stór, meðalstór, lítil fyrirtæki eða heimilin sé  að ræða og ferlið sé opið og gagnsætt. Landssamband framsóknarkvenna telur það ekki forsvaranlegt að nýju bankarnir skuli krefja almenning um fulla endurgreiðslu lána sem voru keypt af gömlu bönkunum með 45% afslætti sem leiðir meðal annars til þess að þeir skila hagnaði á sama tíma og fjölskyldur eru bornar út. Landssamband framsóknarkvenna krefst þess að tafarlaust verði farið í það að leiðrétta stökkbreytt lán almennings með 20% leiðréttingarleiðinni með 10 milljón króna þaki. Stöðva verður þá eignaupptöku sem á sér stað og koma í veg fyrir það að almenningur festist í skuldafangelsi. Landssamband framsóknarkvenna hvetur þingmenn til þess að veita lyklafrumvarpi Lilju Mósesdóttur brautargengi ásamt því að ráðast í það að setja þak á verðtryggingu og afnema hana í þrepum. Landssamband framsóknarkvenna hvetur ríkisstjórn Íslands og þingheim allan til þess að hlusta á þau alvarlegu skilaboð sem almenningur er að senda um raunverulegar breytingar í stjórnmálum á Íslandi þannig að sátt geti náðst í samfélaginu. Landssamband framsóknarkvenna leggur til að skipuð verði þjóðstjórn til þess að ráðast í neyðaraðgerðir, fara í þær lýðræðislegu breytingar sem þarf að ljúka og  síðan verði boðað til kosninga.

Aðför gegn heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni og fæðingarorlofinu

Þá lýsir landsstjórn Landssambands framsóknarkvenna vanþóknun sinni á tillögur stjórnvalda um niðurskurð til heilbrigðismála. Tillögur þessar lýsa algeru þekkingarleysi ríkisvaldsins á starfsemi heilbrigðisstofnana víða um land. Ef þessar hugmyndir ná fram að ganga þá munu þær enn og aftur hafa þau áhrif að störf munu flytjast af landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins.Það eru óþolandi vinnubrögð af hálfu ríkisstjórnar að vinna markvisst að því að fækka fagmenntuðum heilbrigðisstarfsmönnum á landsbyggðinni og skerða með því öryggi þeirra sem þar búa.

Ennfremur munu þessar tillögur lama þá starfsemi sem fellur undir grunnþjónustu í heimabyggð og skerða búsetuskilyrði fólks í landinu. Ekki hefur verið sýnt fram á með nokkrum hætti að flutningur sjúklinga og fæðandi kvenna til Reykjavíkur dragi úr kostnaði ríkisins. Einnig telur landsstjórn Landssambands framsóknarkvenna boðaða skerðingu á framlögum til fæðingarorlofssjóðs vera aðför að því jafnrétti sem þó hefur náðst á undanförnum áratugum meðal annars með tilkomu feðraorlofsins sem Framsóknarflokkurinn kom á. Nú þegar hafa Íslendingar stysta fæðingarorlof allra Norðulandabúa og stytting þess gerir að engu tilmæli um aðbúnað ungbarna, segir á ályktuninni.

Nýjast