Ítölsk listakona sýnir í Mjólkurbúðinni
Ítalska listakonan Mirta Vignatti opnaði sýninguna The Island of Light í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri, laugardaginn 2. júlí sl. og stendur sýningin til 10. júlí. Opið verður um helgina frá 14-17 bæði laugardag og sunnudag og eftir samkomulagi. Listakonunni Mirtu Vignatti var mjög umhugað um tímabili mikilla fólksflutninga þegar hún vann verkin á sýningunni: „Um flóttafólkið sem yfirgefur heimkynni sín, félagslega stöðu og ferðast yfir ógurleg höf og oft fjandsamleg. Margar berskjaldaðar og viðkvæmar sálir stefna í átt að eyju ljóssins. Landi þar sem græn og ilmandi náttúran getur umvafið þau. Tækifæri til sáluhjálpar, nýtt upphaf. Eyjan virðist vera hilling en þörfin fyrir að lifa af er yfirsterkari hinum dimma hljómi eigingirni og ótta. Ljósið er tilgangurinn í fjarska og bíður umbreytinga, líkt og náttfiðrildi í skógi hinnar tímalausu manngæsku,“ segir Mirta um sýninguna. Mirta Vignatti fæddist í Rosario í Argentínu árið 1967 og útskrifaðist í listum frá The National University of Art í Rosario. Árið 2001 fluttist0 hún til Lucca á Ítalíu, þar sem hún býr og starfar í dag. Mirta hefur hlotið viðurkenningar fyrir myndlist sína og nú síðast í flokki málverka Art Protagonist árið 2014 í Treviso. Mirta hefur sýnt víða í heimalandi Ítalíu, í Berlín, Hamborg og nú í fyrsta sinn á Íslandi í Mjólkurbúðinni á Akureyri.