Íslensku Sumarleikarnir á Akureyri tókust vel
Íslensku sumarleikarnir fóru í fyrsta skipti fram á Akureyri um verslunarmannahelgina en þeir tóku við af fjölskylduhátíðinni Ein með öllu.
Hátíðin tókst með mikilli prýði þó gestir hefðu mátt vera fleiri en langtíma veðurspá var hátíðinni ekki í vil. Það rættist þó svo um munaði úr veðrinu og sólin lét sjá sig.
Meðal viðburða sem fram fóru voru tónleikar í Skátagilinu, skemmtifjallaskokk á Hömrum, þríþraut við Hrafnagil, Pabbar og pönnsur og Kirkjutröppu Town Hill þar sem keppnisfólk í fjallahjólreiðamennsku sýndi listir sínar.
Fjölsóttur markaður var haldinn á Ráðhústorgi og á Glerártorgi fór fram hæfileikakeppni fyrir ungt fólk.
Íslensku sumarleikarnir enduðu svo í blíðviðri á Sparitónleikum á Samkomuhúsflötinni á sunnudagskvöld og voru þeir vel sóttir. Fram kom glæsilegt úrval tónlistarfólks og punkturinn yfir i-ið á Sumarleikunum var glæsileg flugeldasýningu og bátar á Pollinum kveiktu á neyðarblysum svo að hann glóði í rauðum bjarma.
Hátíðin fór að öllu leyti vel fram og gestir Sumarleikanna voru til fyrirmyndar. Skipuleggjendur Íslensku sumarleikanna þakka öllum fyrir komuna og hlakka til að hefjast handa við að undirbúa viðburðinn á næsta ári.