Íslensku jólatrén sækja í sig veðrið á kostnað þeirra innfluttu

Sigurður Ormur Aðalsteinsson að höggva jólatré í Miðhálsskógi.
Ingólfur Jóhannsson framkvæmdastjóri…
Sigurður Ormur Aðalsteinsson að höggva jólatré í Miðhálsskógi. Ingólfur Jóhannsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyjafjarðar segir jólastússið hafið í Kjarnaskógi. Byrjað er á að höggva tré fyrir stofnanir og fyrirtæki en hefðbundin jólatrésala hefst í byrjun desember.

Starfsmenn Skógræktarfélags Eyjafjarðar hafa farið nokkrar ferðir út í skóga félagsins til að höggva jólatré. Byrjað er á að sinna fyrirtækjum og stofnunum, bæjarfélögum og þeim sem kaupa stærri tré en hefðbundin sala jólatrjáa hefst í byrjun desember.Hann segir jólastússið stóran lið í því að fjármagna starfsemi félagsins yfir árið.

Stóru jólatrén eru víða farin að gleðja vegfarendur og varpa birtu sinni yfir umhverfið með ljósadýrð sinni.  Ingólfur segir að í boði séu svonefnd Aðventutré sem flutt eru heim að dyrum kaupanda,  þau eru á stöðugum fæti og standa gjarnan utan við verslanir eða fyrirtæki.

“Það er vaxandi að einstaklingar og húsfélög nýti sér þessa þjónustu, enda hægt að fá trén fullskreytt með seríum heim á hlað og engu þarf við að bæta, bara stinga í samband,” segir hann.

Innflutningur dregst saman

Tvær helgar í desember sendur almenningi til boða að höggva sín eigin jólatré í Laugalandsskógi á Þelamörk og þá opnar hin hefðbundna jólatrésala í Kjarnaskógi einnig í byrjun desember. “Þar eru heimilisjólatrén allsráðandi, sum þeirra ræktum við sjálf en erum einnig í samvinnu við fjölmarga íslenska jólatrjáframleiðendur.  Íslensku trén hafa sótt mjög í sig veðrið undanfarin ár og innflutningur hefur að sama skapi dregist saman sem er af hinu góða,” segir Ingólfur en þar vegur þyngst að söngn þyngst aukin umhverfisvitund sem og sjúkdómahætta sem innflutningi fylgir.

“Svo má náttúrulega ekki gleyma því að allt þetta jólatrjáastúss var fundið upp til að gleðja okkur, við reynum að hafa það að leiðarljósi hér í skóginum og hrífa aðra með.”

/MÞÞ

Smellið gif


Athugasemdir

Nýjast