Íslenski safnadagurinn er á sunnudag

Íslenski safnadagurinn er á sunnudaginn 10. Júlí. Af því tilefni verður leiðsögn um sumarsýningu Minjasafnsins á Akureyri; Álfar og huldufólk. Ingibjörg H. Ágústsdóttir leiðir gesti um sýninguna. Sýningin samanstendur af útskurðarverkum Ingibjargar sem tengjast gripum og sögum af huldufólki og samskiptum þeirra við menn, gripa úr hulduheimum sem varðveittir hafa verið í Þjóðminjasafni Íslands ásamt gripum í einkaeign.  

Við þessa mögnuðu blöndu bætist fróðleikur um þjóðtrúna sem tengd er álfum og huldufólki og gefur gestum safnsins góða innsýn inní dulúð hulduheima. Vert er að vekja athygli á að starfsfólk safnsins hlustar gjarnan á álfasögur úr héraði og af öllu landinu frá gestum sínum þennan dag ásamt því að skrá þær niður.

Í Gamla bænum Laufási, í umhverfi frá aldamótunum 1900, verður hægt að smakka á rabbabarasafti og jurtatei um leið og gestir gera sér glaðan dag og ganga um bæinn. Vert er að benda gestum á baðstofuna  sem hefur verið gerð upp eftir kúnstarinnar reglum auk þess sem miklar endurbætur hafa verið gerðar í bænum undanfarin ár sem athyglisvert er að líta á um leið og þeir ganga um og kynnast sögu hans.  

Bernskuheimili hins ástsæla barnabókarithöfundar Jóns Sveinssonar, Nonnahús, býður öllum áhugasömum gestum að kíkja inn og virða fyrir sér  m.a. þær bækur sem þar eru. Nonni skrifaði 12 bækur, sem þýddar hafa verið á 40 tungumál, hann hélt 5.000 fyrirlestra víða um heim og var í raun nokkurs konar sendiherra Íslands í útlöndum á þeim tíma.  Í Nonnahúsi má m.a. sjá brot af þeim bókum sem þýddar hafa verið eftir hann, m.a. bækur á japönsku og esperanto. Í húsinu má einnig sjá myndskreytingar úr bókum víða um heim og muni sem tengjast Nonna og fjölskyldu hans. Í tilefni dagsins er frítt inn á söfnin þrjú og fjölskyldur smáar sem stórar eru hvattar til að kíkja í heimsókn.

Nýjast