Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar ehf. sem rekur 19 leik- og grunnskóla í ellefu sveitarfélögum. Ingibjörg mun starfa við hlið Margrétar Pálu Ólafsdóttur sem verður hér eftir sem hingað til starfandi stjórnarformaður félagsins og hugmyndasmiður. Ingibjörg Ösp, sem leitt hefur Menningarhúsið Hof á Akureyri frá opnun, tekur formlega við starfinu 1. ágúst og tekur hún við af Áslaugu Huldu Jónsdóttur sem hefur verið framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar síðastliðin sjö ár.
Ég hlakka mikið til að hefja störf hjá Hjallastefnunni en ég hef lengi verið full aðdáunar á starfseminni og nálgun Margrétar Pálu á menntun barna. Ég tel menntakerfið eina helstu grunnstoð samfélags okkar og því er það mér heiður að fá að taka þátt í því metnaðarfulla starfi sem Hjallastefnan stendur fyrir og að fá tækifæri til að starfa með öllu því góða fólki sem þar er segir Ingibjörg Ösp.
Hjallastefnusamfélagið mun svo sannarlega njóta góðs af fjölbreyttri reynslu Ingibjargar segir Margrét Pála Ólafsdóttir, stjórnarformaður Hjallastefnunnar. ,,Við höfum alltaf státað af einstaklega færu starfsfólki sem hefur verið okkar helsta stolt og er óhætt að segja að Ingibjörg smellpassi þar inn. Við öll fögnum henni innilega og bjóðum hana velkomna til starfa með öflugum leik- og grunnskólum Hjallastefnunnar.
Í tilkynningu segir að Ingibjörg Ösp sé með meistarapróf í viðskiptafræði, stjórnun og stefnumótun frá Háskólanum á Akureyri. Hún var framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar á árunum 2003-2005 og markaðsstjóri KEA frá 2005-2008. Frá árinu 2008 hefur Ingibjörg stýrt Menningarhúsinu Hofi á Akureyri, fyrst við stefnumótun og undirbúning starfseminnar fyrir hönd Akureyrarbæjar en svo sem framkvæmdastjóri Menningarfélagsins Hofs sem rekið hefur húsið farsællega frá opnun. Ingibjörg er fimm barna móðir en maður hennar er Magnús Geir Þórðarson.
Hjallastefnan var stofnuð árið 2000 af Margréti Pálu Ólafsdóttur sem leitt hefur félagið frá upphafi og er hún aðaleigandi þess. Félagið rekur 19 leik- og grunnskóla í ellefu sveitarfélögum, nemendur í skólum Hjallastefnunnar eru um 2000 talsins og starfsfólk er rúmlega 500. Drifkrafturinn í rekstri Hjallastefnunnar er sú skólahugsjón sem allt starf byggir á; jafnrétti, sköpun og lýðræði.