Íbúafundi í Grímsey aflýst
Fyrirhuguðum fundi sem halda átti í Grímsey annað kvöld, miðvikudaginn 28. janúar og blaðamannafundi á Akureyri morguninn eftir, hefur verið aflýst. Í tilkynningu frá Akureyrarbæ segir að það sé af óviðráðanlegum orsökum sem fundunum er frestað. Stefnt er að því að boða annan fund með einhverju sniði við fyrstu hentugleika allra sem að málinu koma.
Ennfremur segir að millitíðinni haldi bæjarfulltrúar og starfsfólk Akureyrarkaupstaðar, ásamt fulltrúum Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar og Byggðastofnunar, áfram að vinna að lausn yfirvofandi vanda í atvinnumálum Grímseyinga í nánu samráði við heimamenn.
Eins fjallað hefur verið um undanfarna daga er omið er að skuldadögum útgerðamanna í eynni við Íslandsbanka en aflaheimildir í eynni voru m.a. keyptar með lánum frá bankanum og voru þær settar sem veð. Bankinn hefur komið til móts við útgerðarmenn og lengt í lánunum. Akureyrarbær, Byggðastofnun og Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar standa að fundinum ásamt hverfisráðinu í Grímsey. Einnig hefur kynferðisbrotamál klofið bæjarfélagið eynni samkvæmt frétt Akureyri Vikublaðs sem greindi fyrst frá vandanum í Grímsey.