Í fótspor Nonna - Jóns Sveinssonar

Hefur þú séð Nonnasteininn? Hefur þú gengið í fótspor hins ástsæla barnabókarithöfundar Nonna? Ef ekki þá er tilvalið fyrir alla fjölskylduna að gera sér glaðan dag og ganga í fylgd kunnugra um Nonnaslóð á morgun, laugardaginn 25. júní kl 14  Þetta er létt og þægileg ganga þar sem farið verður stuttlega yfir lífhlaup Nonna, lesið uppúr bókum hans og staðir skoðaðir sem tengjast lífi hans og sögum. Haraldur Þór Egilsson, sagnfræðingur og safnstjóri Minjasafnins á Akureyri leiðir gönguna sem tekur rúmlega klukkustund. Lagt verður af stað frá Nonnahúsi kl. 14. Gangan er þátttakendum að kostnaðarlausu.  

Nýjast