Hvalasafnið á Húsavík hlýtur símenntunarstyrk safnaráðs

Ljósmynd: Hvalasafnið á Húsavík
Ljósmynd: Hvalasafnið á Húsavík

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur að fenginni umsögn safnaráðs úthlutað símenntunarstyrkjum úr safnasjóði til viðurkenndra safna árið 2016.

Alls fékk að þessu sinni 21 viðurkennt safn símenntunarstyrk og var Hvalasafnið á Húsavík þeirra á meðal, en heildarúthlutun styrkja var alls 4.603.125 kr.

„Styrkur Hvalasafnsins verður nýttur til kynnisheimsóknar til New Bedford, Massachusetts í Bandaríkjunum, þar sem Hvalveiðisafnið verður sótt heim. Starfsfólk safnsins fer utan nú í lok janúar, með það að markmiði að styrkja núverandi tengsl safnanna tveggja, en þó einnig til að fræðast um starfsemi safnsins með sérstaka áherslu á fræðslu til skólahópa, tengsl við nærsamfélagið, miðlun upplýsinga (sýningar og munir) og varðveislu muna eins og beina og beinagrinda.

Hvalveiðisafnið í New Bedford er yfirgripsmikið og býr yfir mismunandi deildum. Fræðslustarf í safninu er öflugt, auk þess sem gagnaöflun er virk og stuðningur við rannsóknir mikill. Safnið er samfélagsmiðað og heldur árlega tugi viðburða sem ætlaðir eru nærsamfélaginu,“ segir á heimasíðu Hvalasafnsins.

Nýjast