Hundaeigendur á Akureyri passi lausagöngu og fjarlægi saur

Að gefnu tilefni vill dýraeftirlit Akureyrarbæjar minna á að samkvæmt 11. gr. samþykktar um hundahald er hundaeigendum skylt að fjarlægja saur eftir hunda sína. Einnig er ástæða til að minna á að lausaganga hunda í bæjarlandinu er óheimil samkvæmt sömu grein samþykktar um hundahald á Akureyri.

Þá skal á það minnt að ekki er leyfilegt að halda hund í lögsagnarumdæmi bæjarins án leyfis, segir á vef Akureyrarbæjar.


Athugasemdir

Nýjast