Ingibjörg Stella Bjarnadóttir sér um matarkrókinn þessa vikuna og kemur hér með afar girnilegar uppskriftir þar sem humar og hrossafile koma við sögu.
Forréttur
Humarsalat fyrir fjóra
12-16 humarhalar (ekki í skel)
½ krukka sólþurkaðir tómatar
16 ólífur svartar og grænar í bland
12 sykurbaunir léttsteiktar í olíu
1 bolli kasjúhnetur ristar á pönnu
½ box kirsjuberjatómatar
Lambahagsalat
Aðferð:
Létt steikið humarhalana í olíu og kryddið með hvítlauksdufti og salti. Salatblöðin eru lögð fallega á fat og dreifið svo öðru hráefni fallega ofaná, síðast humarhalana. Berið fram með ristuðu fransbrauði og sinnepshvítlaukssósu
Sinnepshvítlaukssósa
1 dós sýrðurrjómi
2 msk sætt sinnep
Sletta af rjóma
Smá hvítlauksduft
Aðalréttur
Hrossafile fyrir fjóra
800-1000 gr Hrossafile
Piparblanda
Salt
Aðferð: Hrossafile er skorið í þunnar sneiðar, kryddað með pipparblöndu og salti og létt steikt á pönnu.
Meðlæti
4 stórar kartöflur bakaðar í ofni í1 klst. Svissað rótargrænmeti á pönnu.
Rjómasveppasósa
¼ litri rjómi
Lerkisveppir
1-2 tsk villikraftur fra oscar
Smjör
Aðferð:
Sveppirnir eru steiktir uppúr smjöri , rjóma helt yfir og krafturinn settur útí. Látið malla á pönnuni í smá stund.
Eftirréttur
Heimagerður ís með heitri Rólósósu
½ liter rjómi
75 gr sykur
3 stk egg
1-2 tsk vanillusykur
Aðferð:
Egg og sykur þeytt í 8-10 min, rjómi þeyttur með vanillu og látið varlega saman við. Sett í mót og fryst.
¼ rjómi
3 lengjur Róló
Aðferð:
Rjómi og róló sett i pott og hrært.