Humarsalat, hrossafile og heimagerður ís

Ingibjörg Stella Bjarnadóttir sér um matarkrókinn þessa vikuna og kemur hér með afar girnilegar uppskriftir þar sem humar og hrossafile koma við sögu.

Forréttur

Humarsalat fyrir fjóra

12-16 humarhalar (ekki í skel)

½ krukka sólþurkaðir tómatar

16 ólífur svartar og grænar í bland

12 sykurbaunir léttsteiktar  í olíu

1 bolli kasjúhnetur ristar á pönnu

½ box kirsjuberjatómatar

Lambahagsalat

Aðferð:

Létt steikið humarhalana  í olíu og kryddið með hvítlauksdufti og salti. Salatblöðin eru lögð fallega á fat og dreifið svo öðru hráefni fallega ofaná, síðast humarhalana. Berið fram með ristuðu fransbrauði og sinnepshvítlaukssósu

Sinnepshvítlaukssósa

1 dós sýrðurrjómi

2 msk sætt sinnep

Sletta af rjóma

Smá  hvítlauksduft

Aðalréttur

Hrossafile fyrir fjóra

800-1000 gr Hrossafile

Piparblanda

Salt

Aðferð: Hrossafile er skorið í þunnar sneiðar, kryddað með pipparblöndu og salti og létt steikt á pönnu.

Meðlæti

4 stórar kartöflur bakaðar í ofni í1 klst. Svissað rótargrænmeti á pönnu.

Rjómasveppasósa

¼  litri rjómi

Lerkisveppir

1-2 tsk villikraftur fra oscar

Smjör

Aðferð:

Sveppirnir eru steiktir uppúr smjöri , rjóma helt yfir og krafturinn settur útí. Látið malla á pönnuni í smá stund.

Eftirréttur

Heimagerður ís með heitri Rólósósu

½ liter rjómi

75 gr sykur

3 stk egg

1-2 tsk vanillusykur

Aðferð:

Egg og sykur þeytt í 8-10 min,  rjómi þeyttur með vanillu og látið varlega saman við. Sett í mót og fryst.

¼ rjómi

3 lengjur Róló

Aðferð:

Rjómi og róló sett i pott  og hrært.

Nýjast