Hugmynd verður sýning

Íris Ólöf
Íris Ólöf
Þriðjudaginn 21. september kl. 17:00 heldur Íris Ólöf Sigurjónsdóttir forstöðumaðurByggðasafnsins Hvols á Dalvík fyrirlestur í Ketilhúsinu á Akureyri undir yfirskriftinni Hugmynd verður sýning. Þar fjallar hún um sýninguna Myndlist minjar / Minjar myndlist sem nú stendur yfir í Listasafninu á Akureyri, en Íris Ólöf er sýningarstjóri sýningarinnar. Á sýningunni Myndlist minjar / Minjar myndlist gefur annars vegar að líta muni markaða af sögu, menningu og andblæ liðins tíma og hins vegar ný listaverk unnin af ellefu listamönnum á aldrinum 28-70 ára sem boðið var að vinna þau út frá munum Byggðasafnsins.
 
Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn sem er sá fjórði í röð fyrirlestra sem haldnir eru í Ketilhúsinu á hverjum þriðjudegi kl. 17 undir yfirskriftinni Þriðjudagsfyrirlestrar.
 

Nýjast