Hressandi tónlist í amstri dagsins

„Mér finnst mjög ánægjulegt að koma með þessa stöð í minn heimabæ og bjóða bæjarbúum upp á nýja og skemmtilega útvarpsstöð,“ segir Sigurður Þorri Gunnarsson tónlistarstjóri Retro útvarpsstöðvarinnar. Retro hóf útsendingar í fyrradag á Akureyri en að sögn Sigurðar spilar stöðin skemmtilega tónlist frá 60's - 90's. „Þetta er tónlist sem fólk getur smellt fingrum í takt við og á að vera góður félagi í amstri dagsins,“ segir Sigurður.

Útvarpsstöðin er rekin af útvarpssviði Skjásins sem m.a. rekur sjónvarpsstöðina Skjá Einn og útvarpsstöðina K100. Retro sendir út á FM 101,9 á Akureyri.  

Nýjast