Hraðamyndavélar í Bolungarvíkur- og Héðinsfjarðargöngum

Þann 15. júlí  næstkomandi verða hraðamyndavélar í Bolungarvíkurgöngum og Héðinsfjarðargöngum teknar í notkun. Uppsetning vélanna er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og er tilgangurinn sá að draga úr ökuhraða á þjóðvegum og fækka umferðarslysum. Umferðaröryggisáætlun er hluti samgönguáætlunar.  

Vegagerðin, innanríkisráðuneytið, ríkislögreglustjóri og Umferðarstofa vinna að uppsetningu hraðamyndavélanna. Um er að ræða stafræna myndatöku þar sem upplýsingar um hraðabrot eru sendar samstundis til lögreglunnar. Ekki er tekin mynd nema um brot sé að ræða.

Nýjast