Ég sóttist eftir fyrsta sætinu, en ég er samt sem áður sáttur við úrslitin. Ég vissi að það yrði við ramman reip að draga og erfitt að keppa við formann flokksins, en hlaut engu að síður dágóðan stuðning. Varðandi annað sætið, þá fékk ég mikinn og breiðan stuðning og er afskaplega þakklátur fyrir traustið, segir Höskuldur Þór Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Á tvöföldu kjördæmisþingi í Mývatnssveit í dag kepptu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður flokksins og Höskuldur Þór Þórhallsson þingmaður um fyrsta sætið á framboðslista flokksins. Sigmundur fékk 220 atkvæði, eða 62,86 % greiddra atkvæða. Höskuldur fékk 123 atkvæði, 35,14 %.
Sjö buðu sig fram á annað sæti listans. Höskuldur fékk 231 atkvæði, eð 66,98 %. Sigmundur Davíð segist ánægður með niðurstöðuna.
Já, ég er mjög ánægður. Ég skal viðurkenna það hér og nú að ég var farinn að hafa svolitlar áhyggjur, vegna umræðunnar síðustu dagana um að þetta væri nánast allt frágengið og öruggur sigur minn vís. Höskuldur fékk líka mjög góðan stuðning í annað sætið, eins og við var að búast.
Líneik Anna Sævarsdóttir fékk flest attkvæði í þriðja sæti, eða 58,8% atkvæða. Huld Aðalbjarnardóttir hlaut næst flest atkvæði, eða 30,2%.
Sex efstu sætin:
1. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, alþingismaður, Reykjavík
2. Höskuldur Þór Þórhallsson, alþingismaður, Akureyri
3. Líneik Anna Sævarsdóttir, skólastjóri, Fáskrúðsfirði
4. Þórunn Egilsdóttir, oddviti, bóndi og verkefnisstjóri, Vopnafirði
5. Hjálmar Bogi Hafliðason, kennari, Húsavík
6. Guðmundur Gíslason, háskólanemi, Fljótsdalshéraði