Framtakssjóðurinn Horn II slhf. sem er í rekstri Landsbréfa hefur fest kaup á 60% hlut í Keahótelum ehf., einu stærsta hótelfélagi landsins. Keahótel ehf. reka meðal annars Hótel Kea á Akureyri og Hótel Borg í Reykjavík. Seljandi er eignarhaldsfélagið Hvannir ehf. Meirihlutaeigendur Hvanna ehf. eru þeir Kristján Grétarsson, Fannar Ólafsson og Andri Gunnarsson. Páll L. Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Keahótela, verður áfram hluthafi í félaginu. Enginn breyting verður á rekstri félagsins við þessa breytingu á eigendahópnum.
Keahótel ehf. stendur að mikilli uppbyggingu um þessar mundir. Í haust tekur félagið meðal annars við rekstri nýs hótels við Austurvöll þar sem áður var Reykjavíkurapótek og vorið 2015 bætist við nýtt hótel við Hverfisgötu og viðbygging við Hótel Borg verður tekin í notkun.
Við erum mjög ánægð með aðkomu Horns að félaginu, segir Páll L. Sigurjónsson framkvæmdastjóri Keahótela ehf. Um þessar mundir er mikilvægur tími í uppbyggingu ferðaþjónustu á Íslandi. Að fá öflugan aðila eins og Horn að félaginu gefur gefur því enn meiri styrk og möguleika til að taka virkari þátt í þeirri uppbyggingu. Við höfum skilað hagnaði á hverju ári í okkar 15 ára rekstrarsögu, innviðirnir eru sterkir og við erum því mjög bjartsýn á framhaldið, segir í tilkynningu