Horft til þess að fjölga ferðafólki yfir veturinn

Ásbjörn Björgvinsson framkvæmdastjóri Markaðsskrifstofu ferðamála segir að nú horfi menn mjög til þess að auka við vetrarferðamennsku í fjórðungnum enda hafi hann upp á margt að bjóða í þeim efnum.  Gert er ráð fyrir að Færeyingar komi í töluverðum mæli til Akureyrar í vetur í þeim tilgangi að sækja Hlíðarfjall heim.   

„Það eru mikil tækifæri til staðar fyrir vetrarferðamennsku hér á Norðurlandi og þau viljum við fyrir alla muni nýta okkur," segir Ásbjörn. Forsenda þess að vel takist til er að millilandaflugi verði komið á um Akureyrarflugvöll og segir Ásbjörn að unnið sé að því af kappi og ýmislegt til skoðunar í þeim efnum.

Hvað nýliðið sumar varðar segir Ásbjörn að mikill fjöldi innlendra ferðamanna hafi verið á faraldsfæti um Norðurland og megi m.a. merkja það í mikilli og aukinni aðsókn að tjaldsvæðum á svæðinu.  Þannig hafi til að mynda orðið 30% aukning gistinátta á tjaldsvæðinu á Blönduósi og um eða yfir 40% aukning í Heiðarbæ í Reykjahverfi.  „Íslendingar voru mjög duglegir við að ferðast um land sitt í sumar og það er ánægjulegt," segir hann.

Erlendir ferðamenn voru álíka margir og verið hefur undanfarin fjögur til sex ár að meðaltali, en í fyrrasumar varð algjör sprenging í komum útlendinga til Íslands og því ekki fyllilega raunhæft að bera það saman við liðið sumar.  „Menn gerðu sér vissulega vonir um að enn myndi bætast við," segir Ásbjörn og nefnir að einkum hafi vantað upp á að suðurevrópubúar hafi skilað sér hingað í sama mæli og verið hefur.  Líkleg skýring þar á geti verið að þeir fari jafnan í sumarfrí í ágúst og fram í september og bóki sínar ferðir gjarnan í mars og apríl.  Einmitt á þeim tíma stóð yfir gos í Eyjafjallajökli sem að mati Ásbjörns hefur sett sitt strik í reikninginn.  „En við teljum að fyrir vikið eigum við heilmikið inni, þetta fólk gæti skotið upp kollinum hjá okkur næsta sumar eða síðar," segir hann.

Nýjast