Hörður sýnir 19. aldar ljósmyndun á Minjasafninu

Á morgun, laugardaginn, 24. september milli kl. 15.00 og 16.00, gefst fólki einstakt tækifæri til að bregða sér aftur um aldir og fylgjast með Herði Geirssyni ljósmyndara og safnverði ljósmyndadeildar Minjasafnsins á Akureyri, taka ljósmyndir og framkalla með efnum og aðferðum sem notaðar voru um 1850.  

Hörður fer í spor Jóns Chr. Stefánssonar, timburmeistara og myndasmiðs sem fyrstur Íslendinga tók ljósmyndir með votplötutækni sem hann hafði lært í Kaupmannahöfn 1858. Hörður hefur undanfarið ár numið 19. aldar ljósmyndafræði í Kalifornínu og gert tilraunir með slíka tækni sem kölluð er votplötutækni (wetplate) eða collodion. Notast er við framandi efni og myndin framkölluð á glerplötu og málmplötu.

Hörður er nú að smíða eigin myndavél frá grunni en hann mun nota myndavél frá 1880 á laugardaginn ásamt færanlegu myrkraherbergi - myrkrakassa sem hann hefur smíðað. Nútímamaðurinn smellir af stafrænu myndavélinni sinni í sífellu jafnvel án þess að virða almennilega fyrir sér myndefnið sem framkallast jafn óðum. Helsta áhyggjuefnið er að tapa myndunum þegar tölvan bilar. Á fyrstu dögum ljósmyndunar var bæði tilefnið og myndefnið valið af kostgæfni enda ljósmyndir alvöru mál.

Nýjast