Þá beindi fundurinn einnig þeim tilmælum til sveitarstjórnar að leggja nokkurt fé í að bæta umhverfi Saurbæjarhúsanna og ásýnd þeirra um leið og jákvætt svar fæst frá ráðuneytinu. Þá lýsti fundurinn þeirri skoðun sinni að eðlilegt sé að ráðuneytið og Þjóðminjasafn leggi fé í þær framkvæmdir enda sé umhverfið einnig umhverfi þeirra fornminja sem þarna eru í umsjón og á ábyrgð þjóðminjavörslunnar.
„Við teljum eðlilegt að horfa til Saurbæjar sem safnamiðstöðvar eða safnaseturs þar sem rúmast gætu fleiri söfn og af ýmsum gerðum," segir Bjarni Kristjánsson sem sæti á í stjórn Hollvinafélags Búnaðarsögusafns Eyjafjarðar. Smámunasafnið sem þar er fyrir hefur þegar unnið sér sess í safnaflóru landsins sem og einnig Saurbæjarkirkja. Bendir Bjarni á að Smámunasafninu berist af og til tilboð um að fá til eignar söfn sem ekki séu öll mikil fyrirferðar en engu að síður forvitnileg, „og full ástæða til að varðveita þau og hafa til sýnis," segir hann.
Söfnin sem um ræðir eigi þó ekki endilega samleið með Smámunasafninu, enda hafi það sína sögu og sérstöku einkenni sem beri að varðveita sem sjálfstæða einingu. Meðal þeirra verkefna sem félaginu er ætlað að vinna að er að semja við eigendur þeirra véla, tækja og áhalda sem nú eru varðveitt að Saurbæ um hvernig sá vísir að safni verði nýttur í þágu væntanlegs Búnaðarsögusafns Eyjafjarðar. „Þá munum við einnig standa að gerð áætlunar um uppbyggingu safnasvæðis í Saurbæ, t.d. varðandi lagfæringar húsa, nýbyggingar og skipulag og frágang umhverfis, en einnig er félaginu ætlað að styrkja rekstur safnsins með söfnun heimilda og muna, gera upp muni og viðhalda húsnæði og athafnasvæðinu utandyra," segir Bjarni.
„Búnaðarsögusafnið mun hins vegar geta fyllt hóp safna af mismunandi gerð og uppruna og orðið þannig hluti af "Safnasetri Eyjafjarðarsveitar" að Saurbæ. Það er vilji Hollvinafélagsins að vinna með menningaryfirvöldum í sveitarfélaginu að vexti þeirrar hugmyndar og stuðla að því að hún geti orðið að veruleika," segir Bjarni. Framlag Hollvinafélagsins verði þó fyrst og fremst að vinna innan þess ramma sem lög þess setja því og þess sé ekki að vænta að félagið geti orðið öflugur fjárhagslegur bakhjarl safnasetursins. „Mörg verk eru aftur á móti þess eðlis að þau kalla á ýmiss konar vinnu sem félagið sér sem sitt framlag," segir hann. Hollvinafélagið muni einkum starfa sem áhugamannafélag án formlegar aðkomu opinberra aðila. Bjarni hvertur alla þá sem áhuga hafa á verkefninu að leggja því lið.
Á fundi menningarmálanefndar Eyjafjarðarsveitar í síðustu viku, kynnti Bryndís Símonardóttir, vinnu við stefnumótun fyrir söfn í Saurbæ. Hugmyndin gengur út á að stofnuð verði safnastjórn sem fari með yfirstjórn Smámunasafnsins og sýninga sem yrðu í gangi á Saurbæjartorfunni og víðar í sveitarfélaginu. Í því sambandi nefndi hún búnaðarsögusafn, skotvopnasýningu, kvennaskólasýningu, servíettusýningu, dúkkulísusýningu , gamla bæinn á Öngulsstöðum og Saurbæjarkirkju.