Hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa hvergi hærri en á Íslandi

Árið 2014 var hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa á Íslandi 71% alls. Ísland er það Evrópuland þar sem hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa er hæst. Noregur fylgir fast á eftir með 69% hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa. Þetta kemur fram í framvinduskýrslu (Progress report) um endurnýjanlega orkugjafa á Íslandi sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og Orkustofnun hafa tekið saman.  Þetta kemur fram í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

„Stjórnvöldum ber að taka saman á tveggja ára fresti skýrslu um endurnýjanlega orkugjafa. Tölurnar í skýrslunni ná yfir árin 2013 og 2014, en vegna breyttrar aðferðafræði eru jafnframt birtar leiðréttar tölur fyrir árin 2010-2012,“ segir í tilkynningunni. /epe.

Nýjast