Hljóðs bið ek allar helgar kindir

Þórir Jóhannsson, kontrabassaleikari og Ingunn Hildur Hauksdóttir, píanóleikari
Þórir Jóhannsson, kontrabassaleikari og Ingunn Hildur Hauksdóttir, píanóleikari
Þórir Jóhannsson, kontrabassaleikari og Ingunn Hildur Hauksdóttir, píanóleikari flytja tónlist eftir Zoltán Kodály, Giovanni Bottesini, Max Bruch, Árna Egilsson, Karólínu Eiríksdóttur og Þórð Magnússon. Tónleikarnir verða í Hofi 24. apríl kl. 16:00.
 
Þórir og Ingunn tefla fram þessari óvenjulegu blöndu hljóðfæra í verkum sem ýmist eru samin fyrir þessa samsetningu eins og Rhapsodia Þórðar, Völukvæði Árna og Fantasia Bottesinis eða Gradus ad Profundum sem samið er fyrir einleiksbassa og Kol Nidrei sem og Epigrammák sem eru aðlöguð þessum hljóðfærum. Kontrabassinn hefur sótt í sig veðrið undanfarna áratugi sem einleikshljóðfæri en verður að teljast enn frekar óþekkt í íslenskri tónlistarflóru. Ingunn og Þórir vilja bæta úr því en samstarf þeirra hófst árið 2012 þegar þeim var boðið að spila á alþjóðlegri ráðstefnu kontrabassaleikara í Kaupmannahöfn.
 
Tónleikarnir eru á vegum Tónlistarfélags Akureyrar og í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar. Einnig eru þeir styrktir af Tónlistarsjóði. 
 
 

Athugasemdir

Nýjast