Hjálparsveit kölluð út eftir að hestur féll ofan í haughús
Hjálparsveitinni Dalbjörgu barst útkall frá Neyðarlínu kl 19:38 í kvöld vegna hests sem hafði fallið ofan í haughús.
Það voru bændur á bænum Litla-Garði í Eyjafjarðarsveit sem óskuðu eftir aðstoð þar sem að hestur hafði fallið ofan
í haughús og á bólakaf.
Björgunarsveitarmenn voru snöggir á staðinn og þá svamlaði hesturinn um í skítnum og rétt hafði granirnar upp úr til að anda. Náðu menn að koma böndum á hann og var hann síðan hífður upp úr skítnum en þá var hann orðinn mjög þrekaður. Hann var síðan settur á hús og þveginn hátt og lágt meðan beðið var eftir dýralækni til að lýta á hann.