HiNT háskólinn á ferð um Norðurland
Fulltrúar frá HiNT háskólanum í Noregi verða með kynningarfundi á Norðurlandi í dag, mánudaginn 9. mars. Kynnt verður háskólanám í tölvuleikjahönnun og margmiðlun. Þetta er þriðja árið í röð sem að fulltrúar háskólans koma til landsins að kynna námið en nú þegar eru yfir tuttugu íslenskir nemendur við háskólann. Ekkert sambærilegt nám er í boði á Íslandi og hafa Íslendingar sýnt náminu mikinn áhuga.
Norskt háskólanám er ókeypis ef frá eru talin 12.000 króna annargjöld. Nám af þessu tagi hleypur víða annars staðar á milljónum króna. HiNT háskólinn er vel tækjum búinn og kennarahópurinn er alþjóðlegur og býr yfir margra áratuga reynslu af svo til öllu sem tengist bæði tölvuleikjahönnun og margmiðlunartækni. Nemendur fá að nokkru marki að velja sér áhugasvið og því finna allir eitthvað við sitt hæfi. Meðal viðfangsefna nemenda er þrívíddarteikning, kvikmyndun, ljósmyndun, hljóðvinnsla, forritun, leikstjórn, framleiðsla og ritstjórn, svo nokkuð sé nefnt.
Fulltrúar háskólans verða í framhaldskólanum á Laugum klukkan 10, Verkmenntaskólanum á Akureyri klukkan 14, Framhaldsskólanum Tröllaskaga klukkan 16:30 og loks með opinn kynningarfund í Menntaskólanum á Akureyri, nánar tiltekið á Hólum í stofu H9. Kynningarnar eru öllum opnar.